Listasafn Íslands / National Gallery of Iceland
28.05.2022-02.10.2022
Exhibition text by Karina Hanney Marrero
Photos by Helgi Vignir Bragason and Sigurður Gunnarsson
Ingunn Fjóla’s installation The Only Constant is Change bears an element of familiarity as the artist revisits and combines components from former works in a new manner. The multifaceted piece conforms to its own inner operating system on one hand and the presence of guests on the other, disguising the starting point of motion.
The only constant is change is a materialized reflection, a celebratory nod even, towards the systematic thinking which has been Ingunn’s modus operandi, although currently shown in an expanded version. Through the years Ingunn has developed and worked in alignment with personalized systematic processes; with The Only Constant is Change she shifts her focus towards the technical systems and systemic processes that govern, directly and indirectly, humanity and the world at large. The piece evokes questions around algorithms, coding, political and economic systems together with internet scrolling alike; putting personal agency and influence into question.
Press here for exhibition text in full length
//
Í innsetningunni Ekkert er víst nema að allt breytist gætir kunnuglegra stefja frá fyrri verkum Ingunnar Fjólu sem þó hafa aldrei verið sameinuð áður. Þessi fjölþætta innsetning stýrist af mismunandi þáttum, annars vegar innbyggðu kerfi verksins og hins vegar aðkomu áhorfandans og því óljóst hver aflvaki verksins er hverju sinni.
Verkið má skoða sem hugleiðingu og jafnvel óð listakonunnar til þeirrar kerfishugsunar sem einkennt hefur verk hennar til þessa en þó í víðara samhengi. Samhliða þróun á eigin hugmyndakerfi beinir Ingunn nú einnig sjónum sínum að þeim tæknilegu og hugmyndafræðilegu kerfum sem stýra, leynt og ljóst, mannfólkinu og heiminum í heild. Hvort sem um ræðir algóritma og kóða, eða litið er til pólitískra kerfa, fjármálakerfa, eða persónulegt vafur um internetið er grandskoðað, þá veltir verkið Ekkert er víst nema að allt breytist upp spurningum um hver sé við stjórnvölinn og hver áhrif og forráð einstaklingsins raunverulega séu.
Sýningartexti í fullri lengd hér







